Jose Mourinho, stjóri Manchester United, mætti á blaðamannafund í kvöld fyrir leik gegn Valencia á morgun.
United spilar við Valencia í Meistaradeildinni en Rauðu Djöflarnir eru búnir að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum.
Mourinho var spurður út í miðjumanninn Paul Pogba í kvöld sem mun byrja leik morgundagsins.
Portúgalinn var spurður út í það hvort hann væri að ná því besta úr Pogba, eitthvað sem hann var ekki hrifinn af.
,,Ég held að þessi spurning sé ekki eitthvað sem ég vil svara,“ sagði Mourinho.
,,Mér er illa við þessa spurningu. Þú getur reynt að spyrja hana öðruvísi en mér líkar ekki við úr hvaða átt hún kemur.“