Fyrir austan, á bænum Jaðri í Suðursveit, eru þau Bjarni Malmquist og Sigrún Elfa að smíða fallegar gjafavörur úr áli. „Vélina sem við notum til að skera út vörurnar smíðaði Bjarni árið 2013 til að geta skorið út og smíðað heimarafstöðvar fyrir bændur. Við byrjuðum svo að smíða Íslandsklukkurnar í september 2016 og hafa viðtökurnar verið mjög góðar. Við skerum klukkurnar út úr 2 millimetra áli og dufthúðum þær í ýmsum litum,“ segir Sigrún.
Jólaskraut úr burstuðu áli
„Við hófum svo smíði á jólaskrauti núna fyrir jólin, sem einnig er skorið úr 2 millimetra áli og ýmist dufthúðað með hvítum lit eða er með burstaðri áferð. Með hverju jólaskrauti fylgir rautt band og erum við að selja skrautið í magnpakkningum og kostar stykkið frá 999 krónum,“ segir Sigrún.
Innblásnar af norðurljósunum
Íslandsklukkurnar koma í tveimur stærðum, lítil er 32×43 sentimetrar og stór 40×55 sentimetrar. „Við bjóðum upp á þær í mismunandi litum, allt frá svörtum yfir í litríka norðurljósaliti. Svörtu litirnir eru háglans, mattur og svo litur sem við köllum Stjörnuhimin, sem er svartur með lituðu glimmeri sem kemur skemmtilega út þegar ljós skín á klukkuna.
Einnig erum við með klukkur sem við köllum Norðurljós og Áróru en báðar útgáfurnar eru innblásnar af norðurljósunum. Þær eru handslípaðar svo engar tvær klukkur eru nákvæmlega eins. Þær njóta sín best ef ljóskastara er beint að þeim, þá lifna norðurljósin við og dansa í klukkunni,“ segir Bjarni.
10% afsláttur fyrir lesendur DV
„Verðið á klukkunum er frá 15.990 krónum en við viljum bjóða lesendum DV afslátt. Ef pantað er með afsláttarkóðanum JOL2018 inni á netversluninni okkar malmlist.com fæst 10% afsláttur af klukkunum til 10. desember,“ segir Bjarni.
Fullkomin jólagjöf
Íslandsklukkurnar hafa verið sérlega vinsælar í gjafir, ekki síst til Íslendinga sem búa erlendis. Klukkurnar koma innpakkaðar í sterkt en létt frauð og eru báðar stærðir innan við 1 kíló með pakkningunni.
Frí heimsending fram að jólum um allan heim
„Alla jafna bjóðum við upp á fría heimsendingu innanlands en við erum í jólaskapi og höfum ákveðið að bjóða einnig upp á fría hraðsendingu með DHL á Íslandsklukkunum fyrir þá sem búa erlendis, fram að jólum. Eins og er eigum við allar gerðir af Íslandsklukkum til á lager, en fyrir þá sem vilja vera vissir um að fá þann lit sem þeir óska eftir er vissara að panta fyrir 10. desember. Afhendingartími er að jafnaði um þrír virkir dagar,“ segir Sigrún.
Nánari upplýsingar má nálgast inn á netversluninni malmlist.com og Facebook-síðunni Málmlist eða í síma 661-4172
Netpóstur: malmlist@bmj.is