Myndband af Kanadamanninum Bob Williams hefur vakið mikla kátínu undanfarið en Williams varð fyrir því óláni að vera stunginn í munninn af býflugu. Unilad greinir frá þessu.
Fjölskyldumeðlimir hans gátu þó ekki annað en hlegið því útlit hans varð raunar sprenghlægilegt. Málið hefur þó ákveðna Íslandstengingu því Williams varð sláandi líkur Má Guðmundssyni, seðlabankastjóra Seðlabanka Íslands.