Sumir pabbar leggja sig meira fram en aðrir
Á hinni skemmtilegu Instagram-síðu „Things I have drawn“ birtast teikningar eftir hinn 6 ára gamla Dom. Síðan er geysivinsæl og ástæðan er sú að pabbi Dom litla tekur teikningar hans og raungerir þær í myndvinnsluforriti. Útkoman er vægast sagt stórskemmtileg.