,,Við vorum að koma úr Selá í Álftafirði og fengum fimm flotta laxa,“ sagði Jón Ingi Sveinsson sem var að koma úr Selá með Lúðvíg Brynjarssyni. En laxanna veiddu þeir mest á einu stað í ánni.
,,Það voru komnir laxar á land áður en við komum að veiða. Þetta var frábær veiðitúr í alla staði,“ sagði Jón Ingi ennfremur.
Veiði var lítið stunduð í Selá í Álftafirði í fyrra en eitthvað samt. En núna hefur veiðst eitthvað af laxi og á örugglega eftir að bætast við, hann er greinilega mættur.
Mynd. Lúðvíg Brynjarsson með flottan lax úr Selá í Álftafirði. Mynd Jón Ingi.