fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Eyjan

Hagsmunasamtök heimilanna: „Dómurinn er ávísun á stórfellda réttaróvissu“

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 16. júlí 2018 17:00

Ásthildur Lóa Þórsdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hagsmunasamtök heimilanna vekja athygli á því að samkvæmt nýföllnum dómi Landsréttar virðist Landsbankinn mega krefja skuldara um greiðslu skuldar þó kröfuhafi geti ekki framvísað frumriti skuldabréfsins. Samkvæmt dómnum sé nóg að hafa afrit skuldabréfs og að líkur séu á því að kröfuhafinn hafi einhvern tímann haft frumrit skuldabréfsins undir höndum, jafnvel þegar svipta á fólk lífsstarfi sínu. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Samtökin segja að dómnum verði áfrýjað:
„Dómurinn er ávísun á stórfellda réttaróvissu þegar tekist er á um réttmæti skulda og hver sé eigandi skuldarinnar ef frumrit finnast ekki, því afrit skuldabréfa geta legið víða. Farið verður fram á áfrýjun til Hæstaréttar og við verðum öll að vona að þar geri Hæstiréttur það eina rétta í stöðunni og snúi dómi Landsréttar við. Eins alvarlegt fordæmi og þessi dómur skapar, þá er hitt alvarlegra að hann er einungis einn dómurinn enn, í langri röð dóma á öllum dómstigum, þar sem málum er snúið á hvolf til að verja hagsmuni fjármálafyrirtækja og/eða hins svo kallaða „kerfis“. Þessi dómur er gott dæmi um það því með honum er allri sönnunarbyrði snúið við.
Meginreglan er sú að sá sem heldur einhverju fram verður að sanna staðhæfingu sína með óyggjandi hætti. Bankinn hélt því fram að hann hefði eignast skuldabréfið en gat ekki fært fram óyggjandi sannanir fyrir þeirri staðhæfingu. Það kom því í hlut skuldarans að reyna að afsanna þá staðhæfingu. Þar með var meginreglunni um sönnunarbyrði snúið við, skuldara í óhag. Það má líkja þessu við að einstaklingur sem er sakaður um afbrot þurfi að sanna sakleysi sitt í stað þess að ákærandinn þurfi að sanna sök. Það væri í andstöðu við þá meginreglu að maður skuli teljast saklaus uns sekt er sönnuð.“
Þá segja samtökin að málið hefði aldrei átt að fara fyrir dómstóla:
„Málið um „týnda skuldabréfið“ er dæmi um mál sem aldrei hefði átt að þurfa að fara fyrir dómstóla. Bankinn getur ekki framvísað skuldabréfinu og þar hefði málið átt að enda. Fjármálafyrirtækin, sem hafa heilu lögfræðideildirnar í vinnu, taka litla áhættu með því að fara með mál sem þessi fyrir hliðholla dómstóla. Fyrir einstakling sem ekki vill láta traðka á réttindum sínum er áhættan aftur á móti mikil og kostnaðurinn meiri en venjulegt fólk ræður við. Það á ekki að vera á „gráu svæði“ og „opið fyrir túlkun“ hvort fjármálafyrirtæki þurfi að framvísa frumriti við lok uppboðs. Leiki minnsti vafi á rétti kröfuhafa á skuldari/neytandi að njóta vafans. Þegar þar að auki er tekist á um lífsstarf og heimili skuldara ríður enn meira á því að lög- og stjórnarskrárvarin réttindi hans séu virt.“
Þá er spurt hver kemur fórnarlömbum valdhafanna til varnar:
„Skuldarinn hefði aldrei átt að þurfa að fara með svona „skýrt mál“ fyrir dóm og það að dæmt hafi verið gegn skýrum réttindum hans er vægast sagt ámælisvert og segir meira en mörg orð um veika stöðu skuldara gagnvart sterku og miskunnarlausu „kerfi“ samspillingar og fjármagns. Fórnarlömbin í þessum „leikjum“ valdahafanna eru einstaklingar sem brotið er á af fjársterkum aðilum, menn, konur og börn, heimili landsins.
Hver kemur þeim til varnar?“
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Katrín vildi Geir Haarde í fangelsi – hefur ekki beðist afsökunar

Orðið á götunni: Katrín vildi Geir Haarde í fangelsi – hefur ekki beðist afsökunar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Katrín með forskot á Baldur – Halla Hrund sækir í sig veðrið

Katrín með forskot á Baldur – Halla Hrund sækir í sig veðrið
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kúrekar og jakkafatalakkar Alþingis – „Fólkið í fínu fötunum, með fínu skoðanirnar og fínu brosin“

Kúrekar og jakkafatalakkar Alþingis – „Fólkið í fínu fötunum, með fínu skoðanirnar og fínu brosin“