fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Eyjan

Einfaldur gönuhlaupari?

Eyjan
Laugardaginn 7. júlí 2018 11:15

Jón Steinar Gunnlaugsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Steinar Gunnlaugsson skrifar: 

Benedikt Bogason lögfræðingur gegnir embætti hæstaréttardómara. Í bók minni Með lognið í fangið lét ég í ljósi þá rökstuddu skoðun að nota mætti orðið „dómsmorð“ um dóm Hæstaréttar í máli ákæruvaldsins gegn Baldri Guðlaugssyni. Bókin kom út á fimmtudegi. Næsta mánudag á eftir gekk lögmaður BB frá stefnu á hendur mér fyrir að hafa notað þetta orð um dóminn. BB hafði setið í málinu og átt aðild að meirihlutaatkvæði sem sakfelldi Baldur. Var gerð krafa um ómerkingu ummæla minna og um greiðslu miskabóta stefnandanum til handa.

Mér er nær að halda að BB og lögmaður hans hafi rokið í þessa málssókn án þess að kynna sér það réttarsvið sem hér reyndi á. Dómaframkvæmd á Íslandi og raunar einnig við Mannréttindadómstól Evrópu benti fremur afdráttarlaust til þess að málssókn BB væri högg sem myndi geiga eða svokallað klámhögg. Sakleysisleg ummæli mín um þennan óforsvaranlega dóm voru miklu mildari en margvísleg ummæli um dóma sem á hefur reynt í réttarframkvæmdinni og ræðumönnum verið talið heimilt að viðhafa.

Lögmaður minn Gestur Jónsson tefldi fram öflugum vörnum sem tóku af öll tvímæli um þetta. Röksemdir hans voru svo að efni til teknar upp í forsendur dómsins, sem sýknaði mig af kröfum hæstaréttardómarans.

Hinn yfirvegaði hæstaréttardómari hrapaði þegar í stað að þeirri ákvörðun að áfrýja dóminum. Tilkynnti hann það í viðtölum við fjölmiðla sama daginn og dómurinn gekk. Kannski hann hafi ekki einu sinni verið búinn að lesa dóminn?

Við fyrstu sýn virðist dómarinn bara vera einfaldur gönuhlaupari, sem hefur litla sem enga stjórn á sér. Það er varla sæmandi fyrir dómara við Hæstarétt að sýna af sér slíkt jafnvægisleysi og þessi maður gerir. Kannski hann hafi verið jafn skotglaður, þegar dómurinn yfir Baldri var ákveðinn?

En sé málið skoðað svolítið nánar má sjá að hann telur sig kannski eiga von til þess að Landsréttur muni dæma með honum. Hann er nefnilega formaður dómstólasýslunnar, en það er ný stjórnsýslustofnun sem tók til starfa um síðustu áramót. Verkefni hennar er að fjalla um og taka ákvarðanir um margvísleg hagsmunamál dómstóla, m.a. Landsréttar. Stofnunin hefur m.a. það hlutverk að leggja mat á og gera tillögu til ráðherra um nauðsynlegar fjárveitingar til dómstólanna, veita dómurum leyfi og skipuleggja símenntun dómara og annarra starfsmanna dómstólanna svo dæmi séu tekin. Kannski áfrýjandinn telji dómara í Landsrétti líklega til að víkja lögfræðinni sinni svolítið til hliðar í þágu valdsmannsins sem hefur svo afdrifarík áhrif á málefni Landsréttarins?

Svo er annað. Hæstiréttur hefur á nýliðnu vormisseri kallað inn líklega 13 af 15 dómurum Landsréttar til að taka sæti sem varadómarar í Hæstarétti. Þar hafa þeir sumir setið í mörgum málum. og sjálfsagt verið strokið blíðlega af dómurunum sem þar sitja á fleti fyrir, þ.m.t. Benedikt.

Það hlýtur að teljast fullkomlega óeðlilegt að Hæstiréttur kalli inn dómara Landsréttar til starfa sem varadómarar. Það er vegna þess að Hæstiréttur mun í framtíðinni fyrst og fremst fjalla um dóma Landsréttar. Viljum við að þarna sé búið að koma á kunningjasamfélagi, þar sem hver strýkur öðrum?

Nú mun ég fá þrjá þessara dómara til að fjalla um mál Benedikts Bogasonar hæstaréttardómara og formanns dómstólasýslunnar á hendur mér. Benedikt hefur líklega metið stöðu sína í málinu svo að hann ætti miklu meiri von um hagstæðan dóm heldur en lagareglurnar kveða á um. Jafnvel hann, svo laus sem hann er við yfirvegun og jafnvægi, hefði varla tekið ákvörðun um að áfrýja þessum dómi nema telja sig eiga sigurvonir vegna valdastöðu sinnar og vinfengis við einstaka dómara Landsréttar.

Það verður forvitnilegt að fylgjast vel með framvindunni í þessu leikriti sem Benedikt lögspekingur hefur sviðsett. Ég hef enn þá trú að dómarar við Landsrétt séu líklegir til að standa þetta af sér. Við sjáum til.

 

Jón Steinar Gunnlaugsson (hinn stefndi)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Thomas Möller skrifar: Ísland á heima í ESB

Thomas Möller skrifar: Ísland á heima í ESB
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Stálin mættust stinn í gær – „Niðurstaðan af hvoru tveggja er að borgin er stjórnlaus“

Stálin mættust stinn í gær – „Niðurstaðan af hvoru tveggja er að borgin er stjórnlaus“