fbpx
Þriðjudagur 08.júlí 2025
Fréttir

Illugi Gunnarsson hættir á þingi

Menntamálaráðherra hefur ekki kost á sér í komandi þingkosningum – „Ég mun kveðja stjórnmálin sáttur, en vissulega með nokkrum söknuði.“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 12. ágúst 2016 12:23

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ill­ugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ætlar ekki að gefa kost á sér til áfram­hald­andi þing­setu. Þetta til­kynnti Illugi á Face­book-­síðu sinni nú rétt í þessu.

„Eftir vandlega yfirlegu hef ég ákveðið að ég muni ekki gefa kost á mér til setu á Alþingi í næstu kosningum.
Allt frá því ég kom heim frá námi árið 2000 hafa stjórnmál verið megin viðfangsefni mitt og ég hef starfað sem aðstoðarmaður forsætisráðherra og utanríkisráherra, gegnt þingmennsku, verið þingflokksformaður og nú síðast ráðherra,“ segir Illugi í færslu sinni.

Þessi tími hefur verið sérstakur í þjóðarsögunni, tími mikilla átaka og stórra atburða sem marka munu íslenskt samfélag til framtíðar. Ég er mjög þakklátur fyrir það tækifæri sem ég hef fengið til að taka virkan þátt í þjóðfélagsumræðunni og sérstaklega vil ég þakka öllum þeim sem hafa stutt mig með ráðum og dáð á undanförnum árum, bæði í prófkjörum sem og í stjórnmálastarfinu almennt. En mat mitt er að ég standi nú á þeim tímamótum að annað hvort haldi ég áfram í stjórnmálum og geri þau að ævistarfi, fái ég til þess stuðning kjósenda, eða snúi mér að öðrum verkefnum. Í ljósi þessa hef ég komist að þeirri niðurstöðu að um það bil 16 ára vera á sviði stjórnmálanna sé nægjanleg, a.m.k. að sinni og að skynsamlegast og áhugaverðast fyrir mig sé að leita nýrra áskoranna á öðrum vettvangi. Ég mun kveðja stjórnmálin sáttur, en vissulega með nokkrum söknuði. Um leið hlakka ég til að takast á við ný verkefni, hver sem þau kunna að verða.“

Ill­ugi hefur verið alþing­is­maður frá árinu 2007 en með hléum þó. Árið 2010 tók hann sér leyfi frá þingstörfum vegna setu sinnar í stjórn peningamarkaðssjóðsins Sjóður 9 en málum hans var vísað til athugunar hjá sérstökum saksóknara af rannsóknarnefnd Alþingis. Snéri Illugi aftur úr leyfi árið 2011.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt