fbpx
Fimmtudagur 19.mars 2026
Eyjan

Langafabarn Trotskís talar um fíkn

Egill Helgason
Miðvikudaginn 4. október 2017 21:39

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

SÁÁ býður Noru Volkow á ráðstefnu í tilefni af fjörutíu ára afmæli hinna merku samtaka. Hún er geðlæknir sem rannsakar fíkn og maður sér ekki betur en að henni hafi mælst vel í þessari frétt á Vísi. Hún segir til dæmis að líkurnar því að verða fíkill í áfengi eða eiturlyf aukist því fyrr sem fólk byrjar að nota efnin.

Það skiptir semsagt sköpum að hamla gegn neyslu unglinga og ungmenna.

Nora er annars af mexíkóskum ættum, hún er afar virtur vísindamaður á sviði fíknifræða, flutti til Bandaríkjanna og varð forstjóri NIDA, National Institute of Drug Abuse.

Fyrir áhugamenn um sögu og stjórnmál er bakgrunnur Noru Volkov nokkuð forvitnilegur. Langafi hennar var hinn frægi byltingarmaður Lev Trotskí sem var einn helsti forsprakki bolsévíkabyltingarinnar í Rússlandi, valdamaður í Sovétríkjunum þangað til Stalín rak hann úr landi og lét loks elta hann uppi og drepa hann í Mexíkó 1940.

Amma Noru var Zinaida Volkova, elsta dóttir Trotskís, en faðir hennar var Esteban Volkov. Nora ólst upp í Coyoacán-hverfinu í Mexíkóborg, í húsinu þar sem Trotskí var myrtur með ísexi.

Stalín hataðist svo við Trotskí að hann lét líka myrða fyrri konu hans, systur hans, bróður hans, einn son hans, tvo tengdasyni, að ótöldum öðrum ættingjum. Faðir Noru var skotinn í fótinn í misheppnaðri morðtilraun gegn Trotskí, þá var hann unglingur.

Þetta er forvitnileg saga, hér má lesa grein frá 2003 um Esteban, föður Noru. Faðir hans, Platon, var fluttur í Gúlagið og síðar skotinn. Móðir hans, Zinaida, amma Noru, fyrirfór sér í París 1933. Þá bjó Esteban hjá Lev Sedov, syni Trotskís, móðurbróður sínum. Það var var eitrað fyrir Sedov í París 1938. Ári síðar var Esteban smyglað frá Frakklandi af vinum Trotskís og til Mexíkó kom hann 1939. Þar fékk hann þetta nafn, á rússnesku kallaðist hann Vsevolod.

Esteban var á leiðinni heim úr skóla þegar hann sá að margir bílar voru umhverfis húsið. Hann fylltist ótta, fór inn í garðinn og sá lögreglumenn sem héldu morðingjanum, Ramon Mercader, föstum. Hann fór svo inn í skrifstofu afa síns og sá hann liggjandi þar á gólfinu, svo var hann dreginn burt, einhver sagði að barnið mætti ekki horfa á þetta.

 

Nora Volkow.

Lev Trotskí, síðari kona hans Natalia Sedova og unglingurinn Esteban, faðir Noru.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Gallar í nýbyggingum

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Gallar í nýbyggingum
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Haraldur Ólafsson skrifar: Auðvitað er hættuspil fyrir íslensku að Ísland gangi í Evrópusambandið

Haraldur Ólafsson skrifar: Auðvitað er hættuspil fyrir íslensku að Ísland gangi í Evrópusambandið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Andri Þór Guðmundsson: Íslendingar gera betur við sig en ferðamenn

Andri Þór Guðmundsson: Íslendingar gera betur við sig en ferðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Útför Davíðs Oddssonar

Útför Davíðs Oddssonar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Hvað felst í „liggja lágt“ leiðinni?

Þorsteinn Pálsson skrifar: Hvað felst í „liggja lágt“ leiðinni?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Andri Þór Guðmundsson: Gríðarleg tækifæri í vöruþróun og samstarfi við birgja – Ísland kjörið fyrir nýjungar

Andri Þór Guðmundsson: Gríðarleg tækifæri í vöruþróun og samstarfi við birgja – Ísland kjörið fyrir nýjungar