fbpx
Fimmtudagur 13.nóvember 2025
Eyjan

Veik sannfæring fyrir staðsetningu spítala

Egill Helgason
Miðvikudaginn 20. janúar 2016 14:22

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þessi merkilega ljósmynd sýnir Landspítalann eins og hann var stuttu eftir að hann var reistur.

Þarna er ekki búið að leggja flugvöllinn, við sjáum hvað svæðið þar sem völlurinn virkar blautt og erfitt yfirferðar. Það getur varla hafa talist vera nein prýði.

Þarna er spítalinn í útjaðri byggðarinnar, en nú stendur hann í henni þar sem hún er hvað þéttust. Skólavörðholtið er þéttbyggðasta svæði á Íslandi.

Eftir því sem lengra líður frá upprunalegum áætlunum virkar æ vafasamara að setja niður stórar spítalabyggingar á þessum stað.

Plön sem eldast þarf að endurskoða miðað við breyttan veruleika, við getum jafnvel staðið frammi fyrir því að þau séu orðin úrelt. Það stefnir allt í að við séum að fara að taka við 2 milljónum ferðamanna árlega hér á Íslandi. Þetta veldur miklu álagi á gamla bæinn – því það er náttúrlega þangað sem ferðamennirnir fara. Umferðin breytist og íbúasamsetningin, þrengslin aukast.

Og jafnframt verða rökin fyrir því að hafa risastóran spítala á þessum stað veikari. Reyndar er langt síðan maður hefur heyrt alvöru röksemdir fyrir þessari staðsetningu – nema þá bara að búið sé að ákveða þetta.

Einhvern tíma var það orðað svo að þetta væri ákvörðun sem hefði „tekið sig sjálfa“. En á þeim tíma voru þó uppi ráðamenn sem unnu staðfastlega að þessu.

En nú  hefur orðið þessi langa töf á framkvæmdum – meðal annars vegna þess að sannfæringin fyrir því að staðsetningin sé góð er afar veik, bæði meðal stjórnmálamanna og úti í samfélaginu.

 

12565369_1118672578144201_692892545392724586_n

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Dagur B. Eggertsson: Þurfum að bregðast við gagnrýni Mannréttindadómstólsins

Dagur B. Eggertsson: Þurfum að bregðast við gagnrýni Mannréttindadómstólsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Okkur fækkar og okkur fjölgar

Sigmundur Ernir skrifar: Okkur fækkar og okkur fjölgar