fbpx
Fimmtudagur 13.nóvember 2025
Eyjan

Hefði ekki þurft að halda samkeppni?

Egill Helgason
Sunnudaginn 10. janúar 2016 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Smávegis í viðbót um „Hafnartorg“. Maður heyrir að sumir spyrja hvort megi ekki byggja neitt nýtt í borginni? Þeir eru jafnvel kallaðir „afturhald“ sem gagnrýna tillögurnar.

Jú, en það sem sker í augu í þessu tilviki er metnaðarleysið. Þetta er sams konar arkitektúr og víða blasir við í úthverfum þar sem áherslan er á að byggja sem ódýrast og með sem mestum hraða.

Tilfinningaleysi fyrir staðháttum – að þetta er í miðri borg og nálægt höfn. Þessi hús líta þannig út að þau gætu verið hvar sem er. Þetta er á tíma þegar Reykjavík er að verða feikilega vinsæll ferðamannastaður – og að nokkru leyti erum við að læra að meta sérkenni borgarinnar í gegnum augu ferðamannanna.

Þeir hrífast af hinni lágreistu, marglitu, svolítið skrítnu byggð – það er ekki svo langt síðan að leit út fyrir að henni yrði mestallri rutt burt. Nú sér maður eftir því sem hvarf – mikið væri gamla Skuggahverfið skemmtilegt ef það hefði fengið að standa!

Svæði „Hafnartorgsins“ er býsna stórt og byggingamagnið mikið. Þetta er á einum fjölfarnasta stað í borginni. Því finnst manni furðulegt að teikningarnar séu gjörsamlega lausar við höfundareinkenni – þær hefðu alveg eins getað eins getað verið hannaðar af vélmenni sem hefði sirkað út meðaltal þess sem er verið að byggja nú á tíma mikillar húsnæðisbólu.

Það þarf enginn að segja manni að stétt arkitekta sé almennt hrifin af þessu – þótt heyrist fáar gagnrýnisraddir, kannski vegna samstöðu og hagsmuna stéttarinnar?

Svo  er þetta í raun svo stórt og áberandi verkefni að það er varla hægt að láta verktaka og spákaupmenn ráða ferðinni – með úrræðalaus skipulagsyfirvöld  Hefði ekki þurft að efna til alvöru samkeppni um byggðina á þessu svæði?

Er það ekki sjálfsögð aðferð til að kalla fram góðar hugmyndir? Eigum við skilið nokkuð annað en verðlaunaarkitektúr á þessu svæði?

Svo er náttúrlega eitt sem er dásamlegt þegar umræðan um skipulagsmálin hefst og Sigmundur Davíð blandar sér inn í hana. Þá er líkt og hún pólaríserist undir eins, sumir geta barsta ekki fengið af sér að vera á sama máli og hann. En málið fer strax að hverfast í kringum persónu Sigmundar. Þetta er náttúrlega eins frumstætt og hugsast getur – á Facebook sér maður fólk sem tekur sérstaklega fram að því sé í raun afar illa við það en í þessu tilviki neyðist það til að vera sammála Sigmundi.

 

859582

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Rísum upp úr lágkúrunni

Björn Jón skrifar: Rísum upp úr lágkúrunni
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Dagur B. Eggertsson: Krónuvextirnir eru þrefaldir á við evruvextina – hrikaleg byrði á íslensk heimili

Dagur B. Eggertsson: Krónuvextirnir eru þrefaldir á við evruvextina – hrikaleg byrði á íslensk heimili
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar kærastar urðu asnalegir

Nína Richter skrifar: Þegar kærastar urðu asnalegir
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Smölun hafin hjá Sjálfstæðisflokknum – styrkleiki fylkinga kannaður á átakafundi

Orðið á götunni: Smölun hafin hjá Sjálfstæðisflokknum – styrkleiki fylkinga kannaður á átakafundi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Reynir Traustason: Mikil mistök að sameinast Kjarnanum

Reynir Traustason: Mikil mistök að sameinast Kjarnanum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Reynir Traustason: „Haltu kjafti, gamla fiskibollan þín!“

Reynir Traustason: „Haltu kjafti, gamla fiskibollan þín!“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Guðrún vill minnka allt

Orðið á götunni: Guðrún vill minnka allt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Ofurskattar íhaldsaflanna

Sigmundur Ernir skrifar: Ofurskattar íhaldsaflanna