fbpx
Laugardagur 21.febrúar 2026
Eyjan

Kjarnorka

Egill Helgason
Þriðjudaginn 30. október 2007 17:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

susquehanna_steam_electric_station.jpg

Einhvern tíma mun olíuna þverra. Notkun hennar hefur skaðleg áhrif á umhverfið. Það er ekki næg vatns- eða gufuorka í heiminum til að koma í staðinn (fyrir utan andstöðu við notkun þessara orkugjafa, a.m.k. á Íslandi), vindorka getur ekki leyst nema brot af vandanum, eldsneyti sem er unnið úr gróðri kemur ekki til greina.

Samt vilja Steingrímur J. Sigfússon og Kolbrún Halldórsdóttir segja Finnum að byggja ekki kjarnorkuver. Og Steingrímur segir Norðurlandaráði að skoða verði málin í heildarsamhengi.

Staðreyndin er sú að á heimsvísu hafa mjög fáir látið lífið vegna friðsamlegrar notkunar kjarnorku. Tölurnar um mannfall vegna Tsjernóbyl hafa til dæmis verið mjög ýktar. Með tækni nútímans á ekki að vera mikið mál að ganga þannig frá kjarnorkuúrgangi að hann sé skaðlaus.

Margir vísindamenn hafa sagt að engin leið sé að sporna gegn koltvísýringsmengun önnur en aukin notkun kjarnorku. Þeirra á meðal er James Lovelock, eitt helsta átrúnaðargoð þeirra sem trúa að allt sé að fara til andskotans vegna gróðurhúsaáhrifa.

Hér er til dæmis grein eftir Lovelock þar sem hann segir að eina græna lausnin á loftslagsvandanum sé kjarnorka.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Erna Bjarnadóttir skrifar: Landbúnaður og ESB: Sérlausnir eru ekki undanþágur

Erna Bjarnadóttir skrifar: Landbúnaður og ESB: Sérlausnir eru ekki undanþágur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Planið er að virka – spyrjið bara Fitch!

Orðið á götunni: Planið er að virka – spyrjið bara Fitch!
Eyjan
Fyrir 1 viku

Formannsslagur í Framsókn: Síðasta ríkisstjórn fjárfesti gríðarlega í innviðum, segir Lilja Alfreðsdóttir

Formannsslagur í Framsókn: Síðasta ríkisstjórn fjárfesti gríðarlega í innviðum, segir Lilja Alfreðsdóttir