fbpx
Sunnudagur 24.ágúst 2025
Eyjan

Möller

Egill Helgason
Miðvikudaginn 17. október 2007 19:26

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

396-220.jpg

Það er svosem eftir öðru að Siglfirðingurinn Kristján Möller, einn af andlegum feðrum Héðinsfjarðarganganna – einhverrar vitlausustu framkvæmdar Íslandssögunnar – ætli að halda áfram byggingu „samgöngumiðstöðvar“ í Reykjavík.

Samgöngumiðstöð er náttúrlega bara feluorð fyrir flugstöð. Það er ekkert vit í að láta strætisvagna fara þarna um enda eiga sárafáir erindi þarna út í mýrina, varla nema nokkur hundruð flugfarþegar á dag. Það eru miklu færri en til dæmis fara um Grensásstöð daglega.

Sem áfangastaður fyrir langferðabíla er þetta líka vondur staður – lengst inni úti á nesinu, nálægt götum þar sem eru oft umferðarteppur, óravegu frá nýrri hverfum borgarinnar.

Þegar Möller var gerður að samgönguráðherra hélt Samfylkingin sig við þá hefð að ráðherra þessa málaflokks yrði alltaf að koma úr dreifbýlustu héruðum landsins. Hann virðist líka ætla að halda alveg óbreyttri stefnu frá tíma Sturlu Bö – í rauninni tekur maður varla eftir því að hafi orðið ráðherraskipti. Kristjáni tókst meira að segja með undarlegum hætti að gera Grímseyjarferjuklúðrið að sínu eigin.

Og hvar eru fjárframlögin sem áttu að koma til Sundabrautar?

En Samfylkingin þarf kannski að fara að hafa áhyggjur af því að ekki hefur orðið stefnubreyting í einu einasta máli frá því í síðustu ríkisstjórn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Prís: Mikilvægt að styðja við verðsamkeppni – hefur áhrif á allan markaðinn

Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Prís: Mikilvægt að styðja við verðsamkeppni – hefur áhrif á allan markaðinn
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Sólveigu Önnu brugðið eftir viðtal við Heiðu borgarstjóra – „Einstaklingar sem að sækjast eftir miklum völdum verða að geta axlað mikla ábyrgð“

Sólveigu Önnu brugðið eftir viðtal við Heiðu borgarstjóra – „Einstaklingar sem að sækjast eftir miklum völdum verða að geta axlað mikla ábyrgð“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Fjármálalesblinda

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Fjármálalesblinda
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Hin raunverulega ástæða fyrir málþófinu um veiðigjöldin

Orðið á götunni: Hin raunverulega ástæða fyrir málþófinu um veiðigjöldin