fbpx
Miðvikudagur 20.ágúst 2025
Eyjan

Félagaskelfar, bænarskrá til útlendra banka, áhangendur handboltaliðsins

Egill Helgason
Fimmtudaginn 25. janúar 2007 18:25

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Er það rétt sem Mogginn segir að væntanleg séu tvö framboð aldraðra og öryrkja?Og hóparnir þegar byrjaðir að kýta sín á milli. Liðsmaður úr öðrum hópnum segir að sér hafi verið neitað að sitja fund hjá hinum, en eftir forsvarsmanni annars framboðsins er haft: "Eftir því sem gremjan er meiri verða framboðin fleiri."

"The more the merrier!"

Mér sýnist að meðal þessa áhugafólks séu menn af því taginu sem hafa verið kallaðir "félagaskelfar". Menn sem þræða félagasamtök og ná einhvern veginn að vekja upp illdeilur hvar sem þeir fara. Kannski bara með nærveru sinni – svona eins og spákarlinn Prolix í bókinni Asterix og falsspámaðurinn.

En það er svosem ekkert einsdæmi að svona framboð líti dagsins ljós. Um daginn var ég að lesa mér til um nýafstaðnar þingkosningar í Serbíu og þar var meðal annars framboð lífeyrisþega.

— — —

Kristján Jónsson á Morgunblaðinu er einhver gleggsti blaðamaður landsins – frumlegur í hugsun og athugull. Það hefur verið unun að lesa Viðhorfspistla hans þá sjaldan að hann skrifar. Þess vegna fagnar maður því að Kristján sé byrjaður að blogga. Samt er eiginlega með herkjum að maður rati núorðið inn á svona góðar síður – Hrafn Jökulsson upplýsir nefnilega að 5000 bloggsíður séu virkar þessa dagana.

En Kristján byrjar vel. Hann skrifar grein undir yfirskriftinni Sendum erlendum bönkum bænarskrá. Upphaf hennar er svona:

"Við sem skuldum húsnæðislán erum búin að uppgötva að við erum mjólkurkýr íbúðarlánasjóðs og banka sem græða feitt á því að við eigum ekki í önnur hús að venda. Í gamla daga sendu Íslendingar kónginum stundum bænarskrá þegar þeim ofbauð skattpíning og önnur valdníðsla. Getum við ekki beðið útlendinga um hjálp í neyð okkar núna? Þeir þurfa ekki einu sinni að vera neitt sérstaklega blíðir í lund, nóg að þeir átti sig á góðu viðskiptatækifæri og hafi hemil á gróðafíkninni."

Svona í framhaldi af þessu má benda á þessa frétt úr Ríkisútvarpinu þar sem segir að dráttarvextir hafi hækkað úr 17 prósentum í 25 prósent á þremur árum. Þetta kom fram í svari Jóns Sigurðssonar við fyrirspurn frá Jóhönnu Sigurðardóttir. Jóhanna bregst svosem ekki aðdáendum sínum. En það er vandamál hversu Samfylkingin er hrædd við að taka stórauðvaldið til bæna.

— — —

Það er svosem allt í lagi að sýna íslenska áhorfendur á pöllunum á handboltamótinu í Þýskalandi, þótt þeir keppi ekki við brasilískar stúlkur sem fylgja fótboltalandsliði þeirrar þjóðar. Maður verður samt ekki fyrir neinni "skönhedsåbenbaring". En best er að forðast að sýna þá sem eru mjög fullir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Svarthöfði skrifar: Öfugmælavísa ritstjórans – niðurlæging stjórnarandstöðunnar tekur engan endi

Svarthöfði skrifar: Öfugmælavísa ritstjórans – niðurlæging stjórnarandstöðunnar tekur engan endi
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Vestrænt sjálfshatur

Björn Jón skrifar: Vestrænt sjálfshatur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Til varnar „mömmuklámi“

Nína Richter skrifar: Til varnar „mömmuklámi“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Meiri fræðsla, minni hræðsla

Thomas Möller skrifar: Meiri fræðsla, minni hræðsla
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Stjörnustund ráðherrans

Óttar Guðmundsson skrifar: Stjörnustund ráðherrans
Eyjan
Fyrir 2 vikum

ESB-aðild: Eldstormur geisar – viljum við standa úti eða fara í skjól?

ESB-aðild: Eldstormur geisar – viljum við standa úti eða fara í skjól?