
Fór og hlustaði á Sálumessu Verdis í Hallgrímskirkju í gær í flutningi hljómsveitar og kórsins Vox academica.
Tónleikarnir voru frábærir, einsöngvararnir Sólrún Bragadóttir, Rannveig Fríða Bragadóttir, Gissur Páll Gissurarson og Kristinn Sigmundsson voru hvert öðru betra.
Þetta er sálumessa, kirkjutónlist, en hún er samt ekki svo fjarri óperusmiðnum Verdi. Einsöngraddirnar hafa veigameira hlutverk en í öðrum frægum sálumessum.
Og svo deyr sópraninn í lokin. Eða maður heyrir ekki betur.
Rétt eins og í óperunum.