
Rama Yade er bráðung kona í ríkisstjórninni í Frakklandi, fædd 1976 í Senegal.
Hún fer með mannréttindamál – en það ráðuneyti heyrir undir utanríkisráðherrann, Bernard Kouchner.
Sjálf telst hún vera múslimi, menntaði sig í kaþólskum skólum en er gift manni af gyðingaættum.
Það er flott.
Það er gott að sjá hana flytja Kínverjum þessi skilaboð:
„Láta af ofbeldisaðgerðum gegn íbúunum [í Tíbet] og láta pólitíska fanga lausa; rannsaka atburðina í Tíbet undanfarið og hefja viðræður við Dalai Lama.“
Annars mætir Frakklandsforseti ekki á leikana.