
Þetta er rétt hjá Hafrúnu.
Ef ekki er hægt að gera greinarmun á einkarekstri og einkavæðingu í opinberri umræðu, þá getur fólk ekki talað saman.
Maður býst ekki við öðru af sumum stjórnmálamönnum – þeir eru vísvitandi að rugla umræðuna – en það er óþolandi ef frétta- og blaðamenn falla líka í þessa gryfju.
Annars er eins og maður heyri tappa skjótast úr kampavínsflöskum hjá sumum læknum við brotthvarf Magnúsar Péturssonar.