
Saga Diths Pran, blaðaljósmyndara sem nú er látinn, varð kveikjan að einni mögnuðustu stríðskvikmynd sem hefur verið gerð, The Killing Fields. Pran var samstarfsmaður erlendra blaðamanna í Kambódíu á tíma stríðsins í Indókína. Þegar Rauðu khmerarnir tóku völdin leituðu síðustu blaðamennirnir hælis í franska sendiráðinu (franskur sendiherra sem var hér á Íslandi fyrir nokkrum árum var þá starfsmaður sendiráðsins í Phnom Penh) – á endanum þurfti Pran að hverfa úr sendiráðinu og bjarga sér sjálfur gegnum blóðvelli Rauðu khmeranna.
Sumsstaðar óð Dith mannabein og líkamsleifar upp í hné. Mælikvarðinn í morðunum var einfaldur: Allir sem litu út eins og þeir hefðu snefil af menntun eða borgarmenningu voru drepnir. Því var lýst yfir að nú skyldi vera „árið núll“. Engan mátti dýrka nema flokkinn, stóra bróður, anka. Þetta eru einhver sjúklegustu fjöldamorð í mannkynssögunni.
Dith Pran var þar í fjögur ár, þangað til honum tókst loks að flýja yfir til Thailands.
The Killing Fields getur vel komið til álita sem besta stríðsmynd sem hefur verið gerð – ásamt til að mynda The Paths of Glory eftir Kubrick og Komið og sjáið eftir Elem Klimov.
Hér eru sýnishorn úr myndinni. Maður er gjörsamlega agndofa þegar maður horfir á hana. Hún segir frá skelfilegri grimmd – og ótrúlegu hugrekki þessa merka manns, Diths Pran.
[youtube=http://youtube.com/watch?v=_Z1sj7gzpCk&feature=related]