
Aðalmálið hjá Samtökum atvinnulífsins næstu árin verður Evrópa.
Það hefur meira að segja verið sagt í mín eyru að samtökin kunni að klofna vegna Evrópumála.
Framkvæmdastjóri SA, Vilhjálmur Egilsson, er Evrópusinnaður þótt hann sé fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Formaðurinn hefur verið Ingimundur Sigurpálsson. Hann kemur úr þeim kima viðskiptalífsins sem eitt sinn nefndist Kolkrabbinn.
Ingimundur forstjóri Íslandspósts – sem eiginlega er ríkisfyrirtæki. Skýtur kannski skökku við að maður í þeirri stöðu leiði slík samtök.
Nú er talað um Þór Sigfússon, forstjóra Sjóvár-Almennra, sem eftirmann Ingimundar. Þór er bráðsnjall maður, mikill pælari.
Guðmundur Magnússon hefur hins vegar heimildir fyrir því að standi til að tefla fram Brynjólfi Bjarnasyni.
Eitt er víst með Brynjólf – hann er bona fide kolkrabbi.