
Ég hef verið spurður að því hvar það birtist kvæði Ögmundar Bjarnasonar læknis um W.H. Auden og seinni Íslandsheimsókn hans.
Þetta kvæði var flutt í Kiljunni á miðvikudag – og mér láðist að geta hvar það kom á prent.
En það var semsagt í hinu ágæta TMM – Tímariti Máls & menningar – sem er undir ritstjórn Silju Aðalsteinsdóttur.
Þýðingar Ögmundar á kvæðum Audens hafa hins vegar birst í tímaritinu Jóni frá Bægisá.