
Jón Baldvin Hannibalsson skrifar mikla afmælisgrein um bekkjarbróður sinn úr Skeggjabekknum í Laugarnesskóla 1952 í 24stundir í dag.
Bekkjabróðirinn er auðvitað enginn annar en Styrmir Gunnarsson sem er sjötugur í dag.
Jón Baldvin skýtur skildi fyrir þennan gamla vin sinn vegna greinarinnar sem nýskeð birtist í tímaritinu Herðubreið og er sögð vera eftir Karl Th. Birgisson – þótt það veki athygli að engar z-tur eru í greininni.
Karl Th. skrifar nefnilega z-tu, rétt eins og Styrmir Gunnarsson.
Þetta segir í greininni:
„Það fer ekki framhjá mér, að menn eru að reyna að koma Styrmi, vini mínum, fyrir pólitískt kattarnef með slúðurburði og gróusögum. Til dæmis er komið út herðibreitt tímarit til andsvars við þjóðmælgi þeirra Gissurarsona. Þetta er fínt. Þarna er kominn vettvangur til að halda áfram rökræðum, um hvert skal halda. Eina greinin í Herðubreið, sem nær ekki máli, er slúðrið um Morgunblaðsritstjórann. Við, sem höfum rifist og rökrætt við hann í meira en hálfa öld, vitum að hann er rökfastur og fylginn sér; en hann hlustar og tekur rökum. Það eina sem hann þolir ekki er yfirborðsmennska, hégómaskapur, látalæti og uppskafiningur. Það er gagnlegt að vita fyrir þá, sem vilja reyna sig við hann.“
Ég óska Styrmi til hamingju með afmælið.