
Það er skrítið að tala um það sem „áframhaldandi fyllerí“ að byggja álver í Helguvík líkt og einn þingmanna Vinstri grænna gerir.
Einhver verðmætasköpun þarf að vera í þessu landi. Við förum ekki bara að gera „eitthvað annað“ eins og sumir hafa lagt til.
Ofurþenslan sem hér hefur verið er ekki stóriðjuframkvæmdum að kenna nema að litlu leyti, heldur miklu fremur æsilegum uppgangi á fjármála og fasteignamarkaði sem lýkur nú með einhvers konar hruni.
Hvað er sjálfsagðara þegar svona kemur upp en að byggja virkjanir og verksmiðjur. Var það ekki einmitt þetta sem Roosevelt gerði í kreppunni miklu? Frægasta framkvæmd þeirra ára var Tennessee Valley Authority.
Annars köllum við yfir okkur atvinnuleysi og eymd. Viðmiðin hafa gerbreyst síðan Andri Snær skrifaði Draumalandið.
Við þurfum að gera allt sem við getum til að koma orkunni – sem kannski er okkar dýrmætasta auðlind – í verð.
Það er enginn á fylleríi lengur – hvað sem Vinstri grænir segja.