
Ég er kominn niður til Spánar. Hér á Costa Blanca er ekkert frægt fólk, bara sauðsvartur almúginn eins og maður er sjálfur.
Það er ekki mikils virði í útlöndum að vera þekktur sjónvarpsmaður á Íslandi. Það hefur nákvæmlega ekkert gildi.
Raunar mun Bob Dylan ætla að halda tónleika hér í júlí – áður en hann kemur til Íslands.