fbpx
Þriðjudagur 24.febrúar 2026
Eyjan

Sjálfstæð utanríkisstefna, ha?

Egill Helgason
Mánudaginn 17. mars 2008 12:23

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hin sjálfstæða utanríkisstefna Íslendinga er að flestu leyti á huldu. Við erum í félagi við herafla Nató í Afganistan. Það er kannski nauðsynlegt, en samt hefur maður á tilfinningunni að allur sá herleiðangur sé misheppnaður.

Íslenskir ráðamenn forðast eins og þeir geta að styggja hið vaxandi heimsveldi Kína. Forsetinn fer í heimsókn þangað og segir ekki múkk um mannréttindamál. Það er rétt sem Árni Snævarr segir að Vigdís Finnbogadóttir lenti í vandræðum seint á forsetatíð sinni vegna þess að henni láðist að ræða mannréttindi við Pekingstjórnina.

Ingibjörg Sólrún aftekur að Íslendingar styðji aðild Taiwan að Sameinuðu þjóðunum. Er það af einhverjum öðrum ástæðum en ótta við Kínastjórn? Hví á Taiwan ekki að fá að vera þarna eins og önnur ríki?

Og svo er það Tíbet.

Af hverju er íslenska ríkisstjórnin ekki að mótmæla fjöldamorðunum þar kröftuglega? Mundi það ekki vekja athygli á alþjóðavettvangi ef smáríkið Ísland lýsti því yfir að það ætlaði ekki að koma nálægt Ólympíuleikunum?

Það væri allavega sjálfstæð utanríkisstefna.

Eða felur þessi stefna kannski aðallega í sér að haldið verður áfram að raða afdönkuðum pólitíkusum og vildarvinum á garðann í utanríkisþjónustu?

Sem sífellt er að blása út.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

EyjanFastir pennar
Rétt í þessu
Sjálfstæð utanríkisstefna, ha?

Pennar

Landráðamenn

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grípur til umdeildrar setningar úr kvikmynd til að svara eftirmanni sínum

Grípur til umdeildrar setningar úr kvikmynd til að svara eftirmanni sínum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Vonlaust verkefni hjá Framsókn – formannsframbjóðendur með sjálfseyðingarhvöt

Svarthöfði skrifar: Vonlaust verkefni hjá Framsókn – formannsframbjóðendur með sjálfseyðingarhvöt