fbpx
Þriðjudagur 24.febrúar 2026
Eyjan

Styrmir vill einangra Samfylkinguna

Egill Helgason
Sunnudaginn 16. mars 2008 09:04

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

2008-01.jpg

Karl Th. Birgisson skrifar mikla grein um Styrmi Gunnarsson í nýtt hefti Herðubreiðar. Þar kennir ýmissa grasa.

Ég vildi gjarnan fá staðfestingu á sögunni sem þarna er rakinn um að Þorsteinn Pálsson hafi setið og hlustað á símtal milli Styrmis og Kristins Björnssonar þar sem þeir eiga að hafa hlakkað yfir væntanlegum óförum Baugsmanna?

Er hægt að spyrja Þorstein?

Svo er það kenningin um að lesendafjöldi Moggans fari minnkandi vegna Styrmis. Ég veit ekki hvort ég trúi þeirri kenningu. Nýs ritstjóra Morgunblaðsins bíður erfitt verkefni; að stöðva flótta lesenda. Mér sýnist reyndar að þeir fari margir hverjir sömu leið og hlustendur útvarpsins samkvæmt könnunum – semsagt fyrir ætternisstapa.

Mogginn reynir ákaft að höfða til ungs fólks, sérstaklega á aftari síðum blaðsins þar sem eru nú langar frásagnir frá Músíktilraunum. En er það að virka?

Á tíma fríblaða fer lestur blaða eins og Moggans minnkandi. Það gerist alls staðar í heiminum. Sum leggja upp laupana. Mogginn á eftir að fara enn neðar. Gamall Morgunblaðsmaður sagði við mig að blaðið ætti að búa sig undir að fara niður í 30 prósent – miða framtíð sína við að verja þá tölu. Það myndi þýða að blaðið hætti að hafa allt samfélagið undir eins og nú er.

Ég er ekki sammála því að Staksteinum hafi farið hnignandi. Er það ekki frekar þvert á móti? Pólitískir andstæðingar Styrmist engjast um dag eftir dag vegna Staksteina; það var meira að segja sett í gang herferð til að segja upp blaðinu.

Styrmir er merkismaður. Og sem stjórnmálaskýrandi er hann einstakur. Eitt einkenni hans er að hann sér allt út frá flokkspólitískum gleraugum. Hann þekkir ekki annað sjónarhorn. Í blaðinu í dag er langt Reykjavíkurbréf. Evrópuumræðan upp á síðkastið verður Styrmi tilefni til að velta fyrir sér hvort ekki hafi myndast tækifæri til að stofna nýja ríkisstjórn þar sem Samfylkingunni – sem hann hatar svo ákaft – yrði sparkað út í hafsauga.

Og Sjálfstæðisflokkurinn tæki undir faðm sinn Framsóknarflokkinn, Frjálslynda flokkinn og kannski Vinstri græna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

EyjanFastir pennar
Rétt í þessu
Styrmir vill einangra Samfylkinguna

Pennar

Landráðamenn

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grípur til umdeildrar setningar úr kvikmynd til að svara eftirmanni sínum

Grípur til umdeildrar setningar úr kvikmynd til að svara eftirmanni sínum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Vonlaust verkefni hjá Framsókn – formannsframbjóðendur með sjálfseyðingarhvöt

Svarthöfði skrifar: Vonlaust verkefni hjá Framsókn – formannsframbjóðendur með sjálfseyðingarhvöt