
Ólafur F. Magnússon er algjörlega áhugalaus um lestasamgöngur. Hann reynir meira að segja að kæfa tillögu um að þessi samgöngumáti verði kannaður nánar – sem nota bene kemur frá Sjálfstæðisflokknum í borgarstjórn.
Var Ólafur að villa á sér heimildir þegar hann þóttist vera umhverfisverndarsinni? Snerist það kannski bara allt um hann sjálfan eins og Björn Bjarnason skrifaði um árið.