
Hótel Valhöll á Þingvöllum hefur lengi verið þyrnir í augum Þingvallanefndar og annarra sem telja að Þingvellir eigi að ríkja mikil helgi.
Öðrum finnst allt í lagi að selja veitingar og leyfa fólki að gista inni í helginni.
En Valhöll sjálft var nánast ónýtt hús og hafði verið lengi, í upphafi var það ekki vel byggt, og ekki hafði verið ráðist í nauðsynlegt viðhald.
Og það eru litlar sem engar líkur á að húsið verði endurbyggt né að annað hótel rísi á þessum stað.