
Einhver sagði að Bjarni Benediktsson væri að hafa met í að hafa margar og fjölbreyttar skoðanir á ESB.
En auðvitað eru margvíslegar skoðanir á ESB innan flokks hans – og Bjarni er að reyna að gera hið ómögulega, að styggja engan í flokknum vegna málsins.
Hann vill reyna að hafa Björn frænda sinn góðan og líka Vilhjálm Egilsson.
Auðvitað er þetta nánast ómögulegt verkefni. Þannig að það er ekki furða þótt málflutningur formannsins virki ruglingslegur og mótsagnakenndur.
Annars er þetta fróðleg samantekt á síðu Marðar Árnasonar – Þeirra eigin orð.