
Sumir segja að í íslensku krónunni liggi leiðin út úr kreppunni.
En því er þá sleppt að krónan er ein helsta ástæða þess að svo miklu verr er komið fyrir Íslandi en nágrannaþjóðum.
Í þessari frétt segir að Ísland hafi sett met í falli gjaldmiðils á ákveðnu tímabili.
En tölurnar eru í raun miklu verri.
Það eru ekki nema nokkur misseri síðan Bandaríkjadalur var í kringum 60 krónur. Nú er hann sirka 130.
Evran var í kringum 85 krónur. Nú er hún 180.
Pundið var í kringum 130. Nú er það 210.
Gengisfall getur nýst hagkerfi til aðlögunar. En það gegnir öðru máli um algjört gengishrun. Aðföng verða óbærilega dýr, rauntekjur snarlækka, verðbólga magnast upp þrátt fyrir að í raun sé enginn verðbólguþrýstingur innanlands, erlend lán sem fólk og fyrirtæki hækka langt umfram sársaukamörk.
Hinn napri sannleikur er að vegna þessa er kjaraskerðingin á Íslandi miklu meiri en í öllum löndum sem við berum okkur saman við.