
Síðan í haust hefur verið skrifað ýmislegt á þessum vef um meðferðina á íslenskum bönkum, fjármálastofnunum og fyrirtækjum.
Fyrst var þetta að miklu leyti í getgátustíl, upplýsingar lágu ekki fyrir. Svo fóru að berast upplýsingar innan úr fyrirtækjunum.
Ýmsir hneyksluðust á þessu, sögðu að hér væru stunduð óábyrg skrif.
En þegar staðreyndir mála birtast kemur yfirleitt í ljós að þær eru miklu verri en nokkuð sem maður ímyndaði sér.
Sjáið til dæmis hvernig er komið fyrir því gamla og fyrrum virðulega félagi Sjóvá sem ríkið þarf nú að bjarga með 16 milljarða meðgjöf eftir að fjárglæframenn hafa pönkast á því.
Og sjáið fréttirnar um hvernig staðið var að einkavæðingu bankanna. Það verður ekki betur séð en að allt einkavæðingarferlið hafi verið byggt á lygum og blekkingum.