
Fréttir herma að fjögur hundruð manns hafi fallið í átökum í borginni Urumqui síðustu daga.
Stjórnin í Peking hefur beitt Uighura stórfelldri kúgun og ofbeldi í gegnum árin. Mesta ofbeldið felst í að flytja fjölda Kínverja inn á svæði Uighura í Xinjang (sem er kínverskt nafn fyrir svæðið sem er líka kallað Austur-Turkestan) og í borgina Urumqui, þar sem þeir taka yfir hús, verslanir og viðskipti, í þeim tilgangi að leggja undir sig byggðir Uighura.
Uighurar eru múslimar, skyldari Mið-Asíuþjóðunum í Kazhakstan, Úsbekistan og Kirgistan en Han-Kínverjum og er tungumál þeirra tyrkneskrar ættar. Kínverjar notuðu voðaverkin 11. september 2001 til að herða tökin á Uighurum og í áróðri sínum gegn frelsishreyfingum þeirra tala þeir gjarnan um hryðjuverkamenn.