
Samkvæmt Morgunblaðinu eru þetta menn sem Eva Joly hefur fengið til að aðstoða við rannsókn hrunsins. Það er ljóst að það er algjörlega nauðsynlegt að nota erlenda sérfræðinga í þessu risavaxna máli.
Berg heitir fullu nafni Helge Skogseth Berg og hann segir að hrun íslensku bankanna sé stærra mál en Enron og World.com.
Ég veit að fyrr á árinu var rætt um aðkomu konu sem heitir Helen Garlick að málinu. Hún er fyrrverandi aðstoðarforstjóri Serious Fraud Office í London. Garlick fór með eitt stærsta fjársvikamál Bretlands, mál British Aerospace, sem var Tony Blair stöðvaði vegna „þjóðarhagsmuna“.