
Í fjölmiðlum í gær og í morgun var mikið vitnað í Gunnar Tómasson, hagfræðing í Bandaríkjunum.
Gunnar telur að yfirvofandi sé greiðslufall ríkissjóðs.
Gunnar hefur lagt margt gott til umræðunnar síðustu misserin – og nú vil ég endilega fá að heyra í ráðamönnum, jú og öðrum hagfræðingum, til að heyra hvort þetta á við rök að styðjast hjá Gunnari.
Er þetta kannski eitthvað sem Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn veit um – og verður þá vonandi tekið tillit til í endurskoðaðri áætlun hans?
Svör óskast.