
Ég man ekki til þess að neinn hafi líkt kreppunni á Íslandi við hryllinginn í gettóum Austur-Evrópu á nasistatímanum eins og Vilhjálmur Vilhjálmsson skrifar.
En það er kreppa á Íslandi. Alvöru kreppa. Við erum með hruninn gjaldmiðil, gjaldeyrishöft, atvinnuleysi sem hefur margfaldast, landflótta, skuldir sem hrúgast upp og mikinn samdrátt í kaupmætti og þjóðarframleiðslu.
Það er líka kreppa í Lettlandi. Ég hitti konu þaðan sem lýsti ástandinu eystra. Það er vont.
Hins vegar er varla hægt að segja að sé alvöru kreppa í flestum Evrópulöndum. Frekar nokkuð snarpur samdráttur. Ég hef komið til Frakklands, Finnlands og Grikklands í sumar og fólk þar skynjar ekki að sé kreppa.
Í Grikklandi óttuðust menn að ferðamannaiðnaðurinn myndi hrynja; það virðist ekki ætla að verða. Almenningur þar er meira að segja orðinn þreyttur á dómsdagsspám fjölmiðla sem honum finnst ekki vera í samræmi við veruleikann. Efnahagsástandið er ekki gott miðað við það sem hefur verið undanfarin ár, en þetta er fjandakornið ekki kreppa segir fólk.
OECD skýrsla sem var birt í gær spáir efnahagsbata í Evrópu, hann verður ekki sérlega hraður og kerfið verður áfram viðkvæmt, en mikilvægast er að því stóra hruni sem virtist vera í uppsiglingu hefur verið afstýrt. Hið sama má lesa út úr skýrslu Federal Reserve í Bandaríkjunum.
Það er afar mikilvægt fyrir Íslendinga. Ef ástandið batnar í viðskiptalöndum okkar verðum við fljótari að ná okkur á strik.