
Excel-fræðin eru eitt af því hættulegasta sem þekkist í rekstri fyrirtækja.
Maður hnikar til nokkrum tölum og fær þá niðurstöðu sem maður vill.
Í úttekt í DV stendur að Sigurjón Árnason hafi verið mikill excel-maður.
Ég ætla að segja litla sögu í þessu sambandi.
Fyrir nokkrum árum var ég leiður á lífinu og Íslandi. Ég drakk kaffi með manni sem tengdist útrásinni og nefndi við hann hvort kannski væri möguleiki fyrir mann eins og mig að fá vinnu í útlöndum.
Hann spurði hvað ég hefði fram að færa.
Ég sagði að ég væri nokkuð hagvanur víða erlendis og gæti bjargað mér á sjö tungumálum fyrir utan móðurmálið.
Uss, hnussaði í manninum, hvað ættum við að gera við svoleiðis fólk?
Og svo bætti hann við:
Ég þarf bara klára stráka sem kunna á excel!