
Skuldaniðurfelling og skattgreiðslur
Sæll Egill !
Enn og aftur vil ég þakka þér fyrir góða pistla, ég les þá reglulega. Oft sammála þér en þó ekki alltaf.
En það var skuldaniðurfellingarmálið sem mig langaði að nefna. Mér fannst þessi skuldaniðurfelling Kaupþingsmanna alveg forkastanleg, en þegar grannt er skoðað, þá er það kannski jákvæðara fyrir íslenskt þjóðfélag að fella skuldir þessara glæpamanna niður heldur en að láta þær standa!
Ef ég skil þetta rétt þá eru tveir möguleikar fyrir hendi.
a) Skuldirnar ekki felldar niður. Þá eru það kröfuhafar gömlu bankanna (aðallega útlendir bankar) sem myndu ganga að liðinu. Starfsmennirnir geta trauðla borgað allar skuldirnar uppí topp og það sem eftir stæði yrði afskrifað af útlendu kröfuhöfunum. Svo gæti 2ja ára tímafresturinn á eignayfirfærslunni, þar sem delarnir færðu allar eigur sínar yfir á eiginkonurnar, verið liðinn í þessu öllu saman líka. Sem sé, sá peningur sem næst fer til útlendu kröfuhafanna, útlendu bankanna og það sem þeir stungu undan og fluttu yfir á konurnar sé horfið sjónum og þeir geta notið þess illa fengs um ókomna tíð.
Ef það er skatturinn sem hjólar í liðið þá gildir reglan um samsköttun hjóna. Það skiptir þá ekki nokkru máli á hvort hjóna eignirnar eru skráðar, skatturinn getur gengið að þeim öllum. Hérna gildir ekki 2ja ára fresturinn vegna þess að eiginkonan er líka ábyrg fyrir skattaskuldum eiginmannsins og að baki þeirri samsköttunarábyrgð liggja allar eignir eiginkonunnar líka og ef hún getur ekki borgað (og hann ekki heldur) þá gætu þeir hugsanlega dregið þetta af laununum (ef ég man rétt, nenni ekki að fletta því upp).
b) Skuldir felldar niður en niðurfellingin sköttuð. Þetta er ekki flókið mál. Ef skattmann hjólar í liðið, þá gildir reglan um samsköttun hjóna. Það skiptir ekki nokkru máli hjá hvoru hjónanna eignir eru skráðar, skatturinn getur gengið að þeim öllum. Hér gildir ekki tveggja ára fresturinn vegna þess að eiginkonan er líka ábyrg fyrir skattaskuldum eiginmannsins og að baki þeirra samsköttunarábyrgð liggja allar eignir eiginkonunnar líka og ef hún getur ekki borgar, (og hann ekki heldur) þá kann að vera hægt að draga þetta af framtíðarlaunum hennar … ekki viss en eitthvað segir mér að svo sé.
Hér er hægt að ná flestum eignum og ekki nóg með það heldur rennur peningurinn EKKI til útlendu kröfuhafanna heldur í ríkissjóð….
Ok þegar ég var búinn að sætta mig við þetta, hvað gerist þá ? Jú stjórn Nýja Kaupþings ætlar ekki að afskrifa lánin meðan þessi óvissa ríkir og málið er í kæruferli. Á meðan getur skattmann ekki hreyft sig því ekki er búið að afskrifa neinar skuldir á delana. Sennilega tekst bankamönnum (með góðri hjálp hins “hæfa” ríkissaksóknara hans Valtýs) að sulla nægjanlega lengi í málinu til að það skemmist og ónýtist !
Auðvitað tekst þeim sem ráða núna að velja bestu leiðina fyrir gömlu glæpamennina. Við sáum það í olíufurstamálin þar sem hinir seku sluppu allir fyrir handvömm ákæruvaldsins. Við sáum það í málverkafölsunarmálinu þar sem lítil lögfræðistelpa, hún Sigríður Rut, rúllaði saksóknara upp og við erum að sjá þetta gerast í dag nema bara á ennþá stærri skala.
Sorrý en ég held að leið b sé þúsundsinnum verri fyrir bankamennina og um leið betri fyrir ríkiskassann.
PS Svona til viðbótar þá hef ég nokkuð tryggar heimildir fyrir því að Sigurjón digri hafi ekki verið eini Landsbankamaðurinn sem var svona “creative” í lífeyrismálum sínum…
— — —
Bjöllueinleikur
Sæll Egill,
þar sem ekkert kemur fram um bjöllueinleikinn sem ég hlustaði á í
sjónvarpinu.
(ég hlusta oftast á útsendingu frá Alþingi ef ég er ekki upptekin við annað)
langar mig til að koma á framfæri þeirri skoðun minni, að það þurfi að
Af-Kastljósa Sigmund Davíð. Hann telur sig greinilega vera ennþá þann sem
stjórnar umræðunum.
Það var alltaf sagt hér á árum áður, að eftir að feimið fólk hefði farið á
námskeið hjá Dale-Carnegie – hefði þurft að af-Dale-a það. því það gerði
ekkert annað en að slá í glas og biðja um orðið. Þannig var Sigmundur Davíð
á Alþingi í gær. Það leit út fyrir að hann teldi sig stjórna Alþingi og
skipaði forseta að hætta að slá í bjölluna.
Ég hef aldrei verið sérstaklega hrifin af Ástu Ragnheiði sem pólitíkusi, en
sem forseti Alþingi finnst mér hún röggsöm og góð.
— — —
Íslenskir útrásarvíkingar vs. Stein Bagger
Það hafa margir borið saman hægagang íslenskrar yfirvalda við að ákæra útrásarvíkingana og danskra sem með miklum hraða dæmdu fjárglæframanninn Stein Bagger. Margir hafa dregið þá ályktun að þetta sé vegna vanhæfis og/eða spillingar innan íslenskrar stjórnsýslu.
Nema að þetta hafi verið það sem Viðskiptaráð meinti með ályktun sinni frá 2007 að við ættum að hætta að bera okkur saman við aðrar þjóðir? Var kannski meiningin að við værum á heimsmælikvarða þegar kæmi að því að blekkja aðra? Erum við ekki alltaf best í því sem við tökum okkur fyrir hendur? Á það ekki líka við um svik og pretti?
Og er það núna sem maður á að fyllast (aftur) stolti yfir að eiga „bestu“ útrásarvíkingana? Kannski að Viðskiptaráð geti ályktað um það.
— — —
Instant klassík úr Kaupþingi
Það vantaði andlit á fréttina um Helga Sigurðsson, snillinginn sem nú
er orðinn yfirmaður lögfræðisviðs Nýja Kaupþings (http://www.kaupthing.is/?PageID=463 ) enda gerði hann allt rétt í þeim gamla.
Hér er andlitið og í þjóðhátíðarbónus er mynd og tilvitnun í
forstöðumann lögfræðiráðgjafar gamla Kaupþings um samskipti við
Fjármálaeftirlitið og um eiginleika íslenskra lögfræðinga. Þetta
birtist í Viðskiptablaðinu 12. júlí 2007, instant klassík.
