fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Spurningar vegna Icesave

Egill Helgason
Þriðjudaginn 16. júní 2009 17:14

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Elías Pétursson skrifar þessa grein.

— — —

Sæll Egill,

Nú virðist allt vera að fara af hjörunum enn einu sinni og ekki að ástæðulausu, við virðumst standa frammi fyrir orðnum hlut varðandi ICESAFE ef marka má yfirlýsingu Breta um helgina um að þeir aflétti hryðjuverkalögunum af okkur í dag vegna þess að íslendingar hafi ákveðið að ganga að kröfum þeirra og ábyrgjast mörg hundruð milljarða eignasölu þrotabús Landsbankans. Finnst bara mér merkilegt að þeir skuli gefa þetta út áður en málið kemur til kasta Alþingis, Steingrímur sagði síðast í kvöld að hann ætti eftir að semja frumvarp um ábyrgðina og mundi leggja það fyrir þingið við hentugleika. Er ekki verið að gera hlutina svolítið í vitlausri röð á nýja Íslandi með allt upp á borðinu ríkisstjórn vinstri manna, hefur ekkert breyst. Hvenær var þetta samþykkt, hvenær var þetta rætt??

En hvað um það svona viljum við víst hafa hlutina í myrkri og bakherbergjum stjórnmálanna, man einhver eftir vandlætingu VG vegna leyndar og lélegs upplýsingaflæðis fyrri ríkisstjórnar Samfylkingar og Sjálfstæðismanna………en þá voru þeir líka í stjórnarandstöðu og öðrum fötum og með aðrar skoðanir. Samfylkingin má þó eiga það að þar er samfella í málflutningi, þeir hafa allan tímann viljað semja án skilyrða og gera það í bakherbergjum með allt fyrirdregið.

 Ég ætla að leyfa mér að segja eftirfarandi, ef það er gjörsamlega og algjörlega nauðsynlegt að við föllumst á þessa ábyrgðarnauðung og skuldbindingu framtíðarinnar  ofan á allt annað sem á okkur leggst þessi misserin þá er það algjör lágmarkskrafa að stjórnmálamennirnir komi hreint fram og segi okkur hversvegna, og hvort þarna á bakvið eru einhverjir baksamningar sem breyta öllum forsendum málsins. Ef við raunverulega neyðumst í þessa vegferð þá verða öll spil að liggja á borðinu við ákvarðanatökuna ef þjóðin á nokkurn tíman að sættast á þetta auma mál, afleyðingar og afborganir þess.

Eftirfarandi eru spurningar sem stjórnmálamennirnir gætu byrjað að svara, fyrstu fimm eru úr fréttatilkynningu InDefence frá í dag og þær seinni úr hugleiðingum mínum vegna málsins

 

Eru þetta ósanngjarnar spurningar og kröfur frá InDefence???

 

1.       Efnahagsspá næstu 15 ára sem samninganefnd Íslands byggði samninginn á. Ljóst er að verði hagvöxtur ekki hærri en meðalvextir skulda íslenska ríkisins, þá eru allar líkur til að aldrei náist að greiða upp lánin. Undir þetta taka meðal annarra Daniel Gross, framkvæmdastjóri Center for European Policy Studies í Brussel, og Robert Wade, prófessor í hagfræði við London School of Economcis.

2.       Gjaldeyristekjur: Icesave samningurinn er erlent lán og það verður að vera ljóst að íslenskir útflutningsatvinnuvegir geti aflað nægra gjaldeyristekna til að standa undir afborgunum af láninu. Ef ekki, gæti ICESAVE samningurinn orðið réttnefndur Versalasamningur 21. aldarinnar?

3.       Lánshæfismat: Staðfesting óháðra aðila á því að lánshæfismat íslenska ríkisins muni ekki lækka vegna þess að full ríkisábyrgð er tekin á greiðslu þeirra gífurlegu fjárhæða sem um ræðir (auk vaxta).

4.       Fyrirvarar: Skýr svör við því hvort fyrirvarar um framtíðarstöðu Íslands eru í samkomulaginu (t.d. um það ef neyðarlögin standast ekki umfjöllun dómstóla).

5.       Samninginn til þingmanna: Síðast en ekki síst er það algert skilyrði, og hrein forsenda þess að Alþingi afgreiði málið, að Alþingismenn fái samninginn sjálfan í hendur ásamt öllum fylgiskjölum. InDefence leggur til að fjármálaráðuneytið óski eftir því við breska og hollenska fjármálaráðuneytið að þingmenn fái aðgang að ICESAVE samkomulaginu. Slíkt ætti að vera auðsótt mál að því gefnu að ekki sé verið að fela neitt fyrir Alþingismönnum.

 Eða þessar frá mér, (kannski svolítið þær sömu en læt þær samt koma með).

 ?         Er verið að halda einhverri stöðu vegna umsóknar samfylkingarinnar um ESB aðild, evran virðist allavega vera utan seilingar í örugglega 30 ár….sama hvað Jóhanna segir.

?         Hefur verið gerð úttekt á hugsanlegum bótakröfum þeirra kröfuhafa sem eru settir út í kuldann með  þessari mismununaraðgerð og neyðarlögunum?

?         Getur verið að Alþingi hafi í raun ekki heimild til þess að skuldbinda okkur svo langt umfram greiðslugetu sem hér er gert,  hvað þá að samþykkja samninginn án þess að hafa fengið að sjá hann og bakgögn hans?

?         Getur verið að vegna ICESAVE samningsins verði lánshæfismat ríkisins lækkað?, og í framhaldi verði lán td Landsvirkjunar og Orkuveitu gjaldfelld og við töpum þessum fyrirtækjum?

?         Getur verið að ef svarið við spurningunni hér að ofan er jákvætt þá muni sveitarfélögin lendi í vandræðum með sýn lánamál vegna ábyrgðarinnar?

?         Eru ráðherrar og alþingismenn að ganga svo langt umfram valdsvið sitt til langtíma skuldsetningar ríkis og þjóðar að möguleiki opnist á málsókn gegn þeim persónulega?

 Ég tek það fram að ég geri mér að því er ég tel góða grein fyrir að í málinu eru engir góðir kostir og öll staða okkar er þröng sakir klúðurs embættis-, stjórnmála- og bankamanna, já og sennilega glæpsamlegs athæfis sumra þeirra, við erum um margt vondu „kallarnir“ í bíómyndinni.  En það má líka nefna tuddaskap „vinaþjóða“  okkar og þvinganir ESB og IMF, þar var nú ekki verið að fara meðalveginn í samskiptum stórþjóða við örþjóðir.

Mín skoðun er samt sú að við getum ekki greitt það sem falla mun á okkur vegna ábyrgðarinnar, alveg sama hve oft reiknum  kálf í kúnna…….

 Það vantar svör og skýringar, það vantar að tala við fólkið sem á að borga partíið.

 Elías Pétursson.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins