
Í kvöld er á dagskrá síðasta Kiljan á þessu misseri. Ætlunin er að taka aftur upp þráðinn í haust.
Hljómsveitin Hundur í óskilum flytur sína útgáfu á Gunnarshólma eftir Jónas Hallgrímsson.
Hjálmar Sveinsson segir frá bók sem fjallar um Gylfa Gíslason, merkan myndlistarmann, þáttastjórnanda og borgara í miðbænum í Reykjavík.
Ágúst Borgþór Sverrisson rithöfundur segir frá uppáhaldsbókum sínum.
Loks látum við Kolbrún undan þrábeiðni Páls Baldvins Baldvinssonar um að fjalla um Ísfólkið. Við ræðum þennan stóra bókaflokk norska höfundarins Margit Sandemo.
Annar Norðmaður kemur líka við sögu hjá okkur, Knut Hamsun, en í sumar eru liðin 150 ár frá fæðingu þessa umdeilda og erfiða skáldsagnahöfundar.
Bragi segir frá vini sínum sem lést fyrir aldur fram, skáldinu og baráttumanninum Ara Jósefssyni.