fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Væri best fyrir Sjálfstæðisflokkinn að klofna?

Egill Helgason
Þriðjudaginn 28. apríl 2009 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lítil grein á vefnum AMX vekur mann til umhugsunar. Þar er nánast haft í hótunum við Benedikt Jóhannesson og Þorstein Pálsson. Í þessum skrifum birtist grímulaust hatur.

Sagt er að sjálfstæðismenn hugsi þeim „þegjandi þörfina“.

Kjartan Gunnarsson talar líka um þetta í viðtali við mbl.is í gær og Björn Bjarnason í pistli á vefsíðu sinni.

Það er líkt og á bak við sé krafa um lenínískan flokksaga. Að flokksmenn megi deila á flokksþingum, en þegar þeim lýkur eigi allir að marséra í takt – þykjast vera sammála.

Maður veltir eiginlega fyrir sér í framhaldi af þessu hvort sé nokkur ástæða til að Sjálfstæðisflokkurinn haldi áfram að vera til í núverandi mynd?

Flokkurinn var myndaður árið 1929 úr tveimur flokkum, Íhaldsflokknum og Frjálslynda flokknum.

Nú er spurning hvort það væri kannski ástæða til að leysa upp þetta bandalag? Að hver fari sína leið?

Menn eins og Benedikt, Þorsteinn, Friðrik Sophusson, kannski Þorgerður Katrín og Ragnheiður Ríkharðsdóttir verði Frjálslyndi flokkurinn.

En Björn Bjarnason, Óli Björn Kárason, Birgir Ármannsson, Sigurður Kári Kristjánsson og Kjartan Gunnarsson verði í Íhaldsflokknum.

Hins vegar er erfitt að sjá í hvorum hópnum Bjarni Ben ætti að vera. Miðað við yfirlýsingar hans, býsna misvísandi, gæti hann verið í báðum hópunum og hvorugum.

Það er spurning hvort stjórnmálalífið yrði ekki hreinskiptnara og markvissara með þessum hætti. Það er ekkert lögmál að hér þurfi að vera einn mónólítískur hægri flokkur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins