
Minnisblaðið frá Seðlabankanum – eða Davíð Oddssyni – er frá 12. febrúar. Fáum dögum síðar er þessi fundur haldinn, eins og segir frá í frétt Morgunblaðsins.
— — —
Föstudaginn 15. febrúar, 2008 – Innlendar fréttir
Ræddu stöðuna á mörkuðum en tóku ekki ákvarðanir
Hefðbundinn samráðsfundur – en ekki haldinn fyrr en nú
Stjórar Fjórir ráðherrar úr ríkisstjórninni hittu bankastjóra og forstjóra fjármálafyrirtækja í gær.
Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is GEIR H. Haarde, forsætisráðherra, sagði eftir fund með stjórnendum helstu fjármálafyrirtækja að þær aðstæður sem nú eru uppi á fjármálamarkaði kæmu utan frá.
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
GEIR H. Haarde, forsætisráðherra, sagði eftir fund með stjórnendum helstu fjármálafyrirtækja að þær aðstæður sem nú eru uppi á fjármálamarkaði kæmu utan frá. Aðspurður sagði hann að ekki væri hægt að segja að bankarnir hefðu brugðist með einhverjum hætti. „En það er alveg ljóst að þeir hafa stækkað mjög hratt. Þeir hafa verið mjög kaldir að sumu leyti við að fjárfesta og þenja sig út. En ég tel ekki að það sé nein hætta, sérstök, á ferðum umfram það sem annars staðar er,“ sagði hann.
Engar ákvarðanir voru teknar á þessum fundi fjögurra ráðherra ríkisstjórnarinnar og stjórnenda fjármálafyrirtækja sem haldinn var í ráðherrabústaðnum í gær. Það var heldur ekki tilgangurinn með fundinum, að sögn forsætisráðherra, heldur var til hans boðað til að ríkisstjórnin gæti kynnt sér viðhorf bankanna til þeirra aðstæðna sem nú eru uppi á fjármálamörkuðum og hvernig ríkið og bankarnir gætu unnið saman, m.a. við að leiðrétta ranghugmyndir um íslenskt efnahagslíf.
Ráðherrar báðu um fundinn
Bankastjórar Landsbankans og forstjóri Glitnis svöruðu spurningum fjölmiðlamanna fyrir utan fundarsalinn eftir að fundinum lauk.
Sigurjón Þ. Árnason, annar af tveimur bankastjórum Landsbankans, sagði að á fundinum hefðu menn farið yfir stöðuna með ráðherrunum, alveg á sama hátt og fundir væru haldnir með forsvarsmönnum útvegsmanna þegar menn væru að velta fyrir sér stöðu sjávarútvegsins. Stjórnendur fjármálafyrirtækja hefðu oft hitt ráðherra á fundum þótt það hefði ekki vakið svo mikla athygli fjölmiðla fyrr. Þetta hefði verið upplýsingafundur sem ríkisstjórnin hefði óskað eftir.
Bankastjórarnir voru fremur ófúsir til að svara efnislegum spurningum um það sem rætt var á fundinum og Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans, taldi eðlilegra að ráðherrarnir tjáðu sig um fundinn enda hefðu þeir beðið um hann. „Þetta var reglubundinn samráðsfundur sem við höfum oft haft áður með ráðherrum,“ sagði hann. Það væri gott að skiptast á upplýsingum og gagnkvæmt traust ríkti á milli manna.
Lárus Welding, forstjóri Glitnis, sagði að margar góðar hugmyndir hefðu verið ræddar á fundinum og hann hefði verið fróðlegur.
Munu standa saman
Geir H. Haarde og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, voru sammála um að fundurinn hefði verið gagnlegur. Geir sagðist hafa rætt við nánast alla þá forsvarsmenn fjármálafyrirtækja sem sóttu fundinn í gær á undanförnum vikum, enda alþekkt að á Íslandi væri stutt á milli manna. „Við höfum nú kannski ekki haldið nákvæmlega eins fundi og þennan en aðstæðurnar eru náttúrlega aðrar,“ sagði hann ennfremur. Á alþjóðafjármálamörkuðum væri ólga og lánsfjárskortur sem yrði mjög vart hér á landi. „Og við viljum ræða það í fullri alvöru við þá hvernig eigi að bregðast við og hvað sé hægt að gera sérstaklega í okkar aðstæðum til þess að mæta þessu,“ sagði hann.
Ingibjörg Sólrún minnti á að erfiðleikar steðjuðu að fjármálamörkuðum um allan heim og líkt og Sigurjón Þ. Árnason greip hún til líkingar við sjávarútveginn. „Ef það væri eitthvað að gerast í hafinu í kringum Ísland þá myndum við að sjálfsögðu standa saman, sjávarútvegurinn og ríkisstjórnin, og það ætlum við líka að gera núna meðan þetta gengur yfir,“ sagði hún.
Í tengslum við Viðskiptaþing
Ingibjörg sagði að til fundarins hefði verið boðað í tengslum við Viðskiptaþing, m.a. til að kalla eftir hugmyndum frá fjármálafyrirtækjum um hvernig ríkisvaldið gæti komið að málum. Hún nefndi sem dæmi að utanríkisráðuneytið myndi sjá til þess að í sendiráðum Íslands væru ávallt til reiðu nýjustu upplýsingar um stöðu mála í íslensku hagkerfi, sérstaklega í sendiráðunum á Norðurlöndum, í Bretlandi og í Bandaríkjunum. Ekki væri þó ætlunin að fara í e.k. kynningarferð, heldur styrkja almenna upplýsingagjöf.
Spurður hvort hann teldi hættu á að einhverjir gætu túlkað fundinn í gær sem e.k. kreppufund, aftók Geir það með öllu. Hann sagði að þetta væri að sjálfsögðu ekki slíkur fundur og það væri í hæsta máta eðlilegt að stjórnvöld hittu fulltrúa fjármálafyrirtækja að máli.