
Það þarf að rökstyðja mjög vel hvaða rök liggja að baki því að fjármálafyrirtækjum á borð við Saga Capital, Byr og VBS er bjargað.
Eða eins og einn pennavinur orðar það:
„Nú eru BYR, VBS og Saga Capital áhugasöm um að kaupa eignir SPRON. Þessi fyrirtæki eru þau einu sem hafa fengið fyrirgreiðslu frá hinu opinbera (fyrir utan 80 milljarðana til Kaupþings) og hanga því uppi enn. Ríkisstyrkir fara í að kaupa af ríkinu. Það var margt undarlegt í fjármálakerfinu, – þar er enn margt skrítið. Líkt og keisarinn í Róm ákveða stjórnvöld nú hverjir lifa og hverjir ekki. Enginn veit hvað ræður.“
Sama dag og tilkynnt er um björgun VBS segjast þeir vilja kaupa Netbankann.
Ég hef varla neitt að segja í því máli.
En ég hef verið í viðskiptum við Netbankann – og hef nákvæmlega engan áhuga á að lenda inni í VBS.
