
Þessi skýrsla úr Seðlabankanum frá því í febrúar 2008 er nokkurt lykilplagg.
Stjórnendur Seðlabanka fara til útlanda og hitta erlenda bankamenn.
Þeir segjast hafa mikla vantrú á íslenska bankakerfinu.
Fulltrúar erlendu bankanna mátu stöðu Íslands sem alvarlega eða grafalvarlega.
Davíð Oddsson hefur sagt að þessi skýrsla hafi verið lesin upp fyrir forystumenn ríkisstjórnarflokkanna, ráðherra og embættismenn.
Samt var ekkert gert!
Nema Ingibjörg Sólrún og Geir Haarde fóru til Kaupmannahafnar og New York til að „kynna“ íslenskt efnahagslíf.
Þau töldu þetta vera ímyndarvanda.
Og Jónas Fr. Jónasson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, virðist hafa verið sömu skoðunar.
Allt þetta fólk kaus að trúa skýringum íslensku bankanna.
Í fréttinni kemur fram að fréttastofa RÚV er með skýrsluna undir höndum.
Það þarf að setja hana á netið í heild sinni.