
Morgunblaðið er að birta mikla úttekt á einkavæðingu Búnaðarbanka og Landsbanka.
Það kemur fram að blaðið hafi fengið aðgang að gögnum einkavæðingarnefndarinnar í forsætisráðuneytinu. Slíkum aðgangi hefur verið neitað þar til nú.
Úttektin sannar annars hinar illu grunsemdir sem maður hefur haft um einkavæðinguna.
Bönkunum var handstýrt í hendur einkavina stjórnmálaflokkanna í afar ógegnsæju og ótrúverðugu ferli.
Þessa einkavini kallaði Davíð Oddsson óreiðumenn þegar hrunið var orðið að veruleika.
Í þessari atburðarás er að finna eina helstu orsök hrunsins sem varð hálfum áratug síðar.
Þess vegna er afar gott að fá þessar upplýsingar „upp á borðið“.