fbpx
Laugardagur 28.febrúar 2026
Eyjan

Jóhanna sagði já

Egill Helgason
Fimmtudaginn 19. mars 2009 19:33

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jóhanna þráaðist lengi við, enda sögð vera einhver þrjóskasta kona á Íslandi, en þau fengu hana loks til að draga vagninn.

Voru búin að biðja hana mikið og lengi, og segja henni að hún þyrfti ekki að vera formaður nema að nafninu til.  Þau mundu sjá um allt hitt fyrir hana.

Jóhanna vill einbeita sér að því að vera forsætisráðherra. Miðað við skoðanakannanir verður hún það áfram eftir kosningar.

Það er spurning hvað hún á mikið í 31 prósents fylgi Samfylkingarinnar í nýjustu skoðanakönnun.

Sjálfstæðisflokkurinn fær útreið þrátt fyrir prófkjör helgarinnar – eða kannski vegna hennar.

Það er spurning hvernig Bjarni Benediktsson mun virka gegn heilagri Jóhönnu. Hann er alls ekki óumdeildur innan Sjálfstæðisflokksins – og spurning hvernig hann höfðar til óákveðinna kjósenda.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“