fbpx
Laugardagur 28.febrúar 2026
Eyjan

Furðulegir viðskiptahættir

Egill Helgason
Fimmtudaginn 19. mars 2009 14:32

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hér er lýsing Morgunblaðsins á stórkostlega merkilegum viðskiptum.

Maður er eiginlega gáttaður yfir hugmyndafluginu.

Annars er á mörkum þess að hægt sé að kalla þetta lán – er ekki nær að tala um gjöf.

Félag í eigu tólf stjórnenda og starfsmanna Baugs Group, BGE eignarhaldsfélag, hafði lánað starfsmönnunum 3,4 milljarða króna til þess að kaupa hlutabréf í Baugi í árslok 2007. Lánin voru fjármögnuð með lánum frá Kaupþingi og veitt gegn veðum í bréfunum sem keypt voru í Baugi. Baugur hefur óskað eftir gjaldþrotaskiptum og því eru hlutabréfin verðlaus. Kaupþing getur því ekki innheimt lánveitingarnar.

Samtals námu eignir BGE 5,3 milljörðum króna í lok árs 2007 og höfðu þá tvöfaldast frá árinu áður. Eignir félagsins voru tvær; annars vegar lánveitingarnar til starfsmanna Baugs og hins vegar 2,35 prósent eignarhlutur í Baugi sem var bókfærður á 1,9 milljarða króna.

Stefán Hilmarsson, fyrrum aðstoðarforstjóri Baugs, segir að BGE hafi haldið utan um kaupréttarsamninga starfsmanna félagsins. „Félagið tók lán hjá Kaupþingi banka til að fjármagna sig og lánaði síðan áfram til starfsmanna Baugs. Veðin voru í bréfunum sjálfum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“