fbpx
Laugardagur 28.febrúar 2026
Eyjan

Lítil saga út bankakerfinu

Egill Helgason
Miðvikudaginn 18. mars 2009 19:24

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrir nokkru hafði samband við mig starfsmaður úr einum af gömu bönkunum.

Hann sagðist hafa starfað í útlánadeildum bankans. Þar hafði hann farið að veita því athygli hversu miklar fjárhæðir var verið að lána gegn litlum eða engum veðum.

Hann skoðaði útlán sem tengdust einu stærsta eignarhaldsfélaginu og komst að því að stöðugt var verið að lána því peninga út á sama og engin veð.

Starfsmanninum fannst þetta svo alvarlegt að hann ákvað að gera viðvart. Hann lét semsagt yfirboðara sína vita að það væri ekki allt með felldu.

Viðbrögðin voru einkennileg.

Starfsmaðurinn var tekinn úr útlánadeildinni. Fluttur í aðra deild – á svið sem hann hafði sáralítið vit á. Um leið var honum skammtað nýtt tölvupóstfang – þannig að hann hafði ekki aðgang að gamla pósthólfinu sínu.

Hér má sjá dæmi um svonalagað.

Glórulausa lánastarfsemi – og alltaf til sömu vildarvinanna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“