
Ég hef ekki tölu á því hvað ég er búinn að sjá mörg viðtöl við William Fall, bankastjóra Straums, um hvað bankinn hans væri vel staddur – og alls ekki eins og hinir bankarnir.
Mér fannst eins og þetta væri hugsanlega montnasti maður á Íslandi.
Fjölmiðlarnir voru sumir mjög ginnkeyptir fyrir þessu.
Svo er þetta komið á hausinn hjá manninum og félögum hans, og þá kenna þeir öllum um nema sjálfum sér.