
Sparisjóðirnir fá viðurkenningu vegna góðs árangurs í svokallaðri ánægjuvog. Í fréttinni segir.
„Vörumerki sparisjóðanna, Sparisjóðurinn, Byr og SPRON raða sér í þrjú efstu sætin í hópi fjármálafyrirtækja og er þetta 10. árið í röð sem sparisjóðirnir hreppa þá viðurkenningu.“
Það er svosem ágætt. Ég er með mín bankaviðskipti í einum sparisjóðanna og hef ekki yfir neinu að kvarta varðandi þjónustu við mig prívat og persónulega. Hún er alveg ágæt, en reyndar ekki mjög umsvifamikil.
Í fréttinni segir ennfremur:
„Í kjölfar þessarar viðurkenningar munu sparisjóðirnir á Íslandi standa að kynningarátaki næstu vikur þar sem athygli verður vakin á þeim gildum sem sparisjóðirnir standa fyrir og hlutverki sparisjóðanna í íslensku samfélagi.“
Hvaða gildi eru það?
Og þá er ég ekki að meina einhvern áróður, heldur bara sannleikann.
Nú veit ég ekki betur en að Sparisjóðabankinn sé de facto gjaldþrota, Byr og Spron eru einna skýrustu dæmi algjörrar græðgisvæðingar – og umtöluð dómsmál eru í gangi tengd þeim báðum.
Hins vegar er alveg hægt að skrifa undir gildin hjá Ara Teitssyni, stjórnarformanni Sparisjóðs Suður-Þingeyinga.