
Hér hefur áður verið bent á snilldarpistla Sigrúnar Davíðsdóttur, fréttaritara útvarpsins í London. Sigrún fjallar í síðasta pistli um Eignarhaldsnetið að baki Baugi. Meginreglan þar virðist hafa verið, þeim mun flóknara, þeim mun betra. Þarna er meðal annars vikið að þeirri frægu eyju Tortolu í Karíbahafi – sem sumir virðast eiga erfitt með að muna.
Segir meðal annars í pistli Sigrúnar:
Í viðtali í Silfri Egils í haust kannaðist Jón Ásgeir Jóhannesson ekki við nein Tortólufyrirtæki. Jón Ásgeir hefur kannski ekki rekið minni til hvernig farið var að við stofnun ‘Baugs Holding’ og fleiri Lúx-félaga hans. Það má til sanns vegar færa að peningarnir sjálfir fara ekki til Tortólu heldur er þetta Tortólukerfi nokkurs konar peningaveita sem skilar peningum sporlaust þangað sem síðan er hægt að ráðstafa þeim. Skömmu eftir skráningu ‘Baugs Holding’ eru skráðir stjórnendur þeir Jón Ásgeir, Tryggvi Jónsson og Hreinn Loftsson. Þeir tveir síðastnefndu eiga einnig eignarhaldsfyrirtæki skráð í Lúxemborg. Lúx-fyrirtæki Hreins tengjast ýmsum kaup-og-sölufléttum í íslensku viðskiptalífi undanfarin ár.
Saga ‘Gaums Holding’ liggur líka um Tortólu. Tvö fyrirtæki þar, sem Kaupþing í Lúxemborg notaði síðar, stofnuðu tvö félög með frönsku nafni í júní 1998. Síðar breyttu þessi félög um nafn, annað varð ‘Gaumur Holding’. Merkilegt að hitt félagið varð ‘Meidur Holding’. Meiður á Íslandi varð síðan að Existu. Í kringum þetta upphaf hafa sprottið ýmsar getgátur um rússnesk tengsl en engin þeirra virðist haldbær.