
Það kemur fram í bréfinu frá skilanefnd Glitnis að fjárhagsleg staða Baugs hafi verið til skoðunar um nokkurt skeið og að í gangi hafi verið „fjölbreyttar aðgerðir“ síðustu tólf mánuðina.
Maður heyrði reyndar sitthvað í þessa áttina löngu fyrir hrunið. Að bankarnir leyfðu fyrirtækjum að lifa sem væru í raun komin yfir um, hefðu litla sem enga möguleika á að lifa af.
En fyrir bankana hefði komið illa út að setja þau í þrot. Það hefði getað hrundið af stað skriðu – og komið upp um hversu staða bankanna var veik.
Þeir vildu frekar halda fyrirtækjunum í limbói. En á meðan virðast þeir að einhverju leyti hafa haldið áfram að dæla í þau peningum.
Ég skrifaði um það 17. apríl á síðasta ári að Gordon Brown hefði þá gert kröfu til breskra banka um að þeir horfðust í augu við raunverulega stöðu sína, gerðu upp tap sem mögulega væri hulið.
Annars er verður forvitnilegt að fræðast nánar um skuldir Baugs í íslenskum bönkum.
Kemur þá í ljós að útrásin var að stóru leyti kostuð af fé úr íslenskum bönkum?
Annars virðist hafa verið hugsað fyrir þessu, því í sumar voru eignir Baugs á Íslandi færðar yfir í eignarhaldsfélagið Gaum eins og kemur fram í þessari frétt.
Svo í framhaldi af þessu: Ætli Milestone fái sömu trakteringar í Glitni og Baugur?